Wednesday, May 18, 2022

Þriðjudagur 17. maí 2022

 Ágætt veður í dag, 12°C kl. 9 í morgun og sólskin, skýjað og skúrir síðdegis, en áfram hlýtt. 

Í Hafnargerði er allt að verða grænt, nema sitkaölurinn og blæöspin,  þau bíðan enn átekta. Ég fór í Þöll í gær og kom heim með 4 nýjar tegundir. Nú voru engar bakkaplöntur í boði, og ég fann þessar tegundir sem okkur vantaði: 

Sitkareynir - Sorbus sitkensis

Sitkavíðir 'Óli' - Salix sitchensis

Blæölur - Alnus tenuifolia

Dúntoppur -  Lonicera xylosteum

Gekk einn hring og dáðist að öllu mögulegu, t.d. páskaliljum og fleiri laukum, gömlum og nýjum. 








Skildi gróðurhúsið eftir opið í fyrsta sinn á þessu vori. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive