Ágætt veður í dag, 12°C og hægur vindur, svolítil rigning af og til.
Dagurinn fór nokkuð mikið í að taka til í skúrnum og fara með rusl. En ég gróðursetti líka 13 myrtuvíði og 12 körfuvíði. Þetta voru 2ja ára plöntur í skyrdósum, rétt náði að troða þeim niður með því að gera gat með geyspunni og tróð smávegis af sveppamassa undir. Þessar plöntur fóru norðan við skóginn með rjóðrinu, þar er stundum norðangola undir trjánum þegar sólskin er.
Fór að lokum með einn bakka af skrítnum sjálfsáðum plöntum í "Ruslahauginn". Þar hef ég sett allmargar plöntur sem ég hef ekkert annað að gera við, en það er nú ekki mjög mikil spretta, enn sem komið er.
Losaði úrkomumælinn: 31 mm síðastliðna viku.
No comments:
Post a Comment