Monday, May 9, 2022

Mánudagur 9. maí 2022

Í dag var ágætt veður fram eftir degi, 9°C og NA7. Það er komin græn slikja á Hafnarskóginn og í Hafnargerði er allt að gerast. Sitkaölur og blæösp eru þó varla farin að láta á sér kræla. 

Við settum niður nokkrar plöntur nálægt hliðinu. Þar var áður algjör eyðimörk, en nú hefur lúpínan myndað gróðurþekju og bundið jarðveginn. Við settum niður 10 viðjur og 10 hreggstaðavíði ásamt 18 jörvavíði. Viðjurnar þar nálægt voru lengi að ná sér á strik, enda var engin lúpína nálægt þegar þær voru settar niður. 



Til hægri eru nokkrar birki- og reyniplöntur, aftar gamla viðjan. 

Smellti af Halldóri þar sem hann er að skoða sprettuna. Hér sjást hlutföllin, grenið potast upp. 

           

No comments:

Post a Comment

Blog Archive