Við fórum að Mógilsá í gær og á meðan kerfið vökvaði tókum við upp heilmargar sjálfsánar birkiplöntur í mölinni við gróðurhúsið. Þær settum við niður í dag í auðnina uppi við þjóðveg, lengst í SA. (Ca. 50) Birki, viðja og loðvíðir frá því í fyrra og hittifyrra er í góðum vexti, en ennþá eru plönturnar smáar. Lúpínan breiðir hægt og hægt úr sér og allt svæðið er að fá gróðurþekju sem ekki var til staðar fyrir 6 árum.
Hrossakastanían er með dauðan stofn, en það kemur fullt af nýju laufi neðst. Best að leyfa henni að vaxa í friði og sjá hvað verður úr þessu.
No comments:
Post a Comment