Tuesday, July 29, 2014

Þriðjudagur 29. júlí 2014

 Gott veður fram eftir degi, en síðdegis hvessti af norðri. Samkvæmt bílmæli var hitinn 16°C upp úr kl. 17, en veðurstofumælirinn sýndi 19°C. Við hættum við að gróðursetja og fórum aftur heim eftir að hafa farið einn hring um svæðið.  Við tókum upp einn hvítlauk, hann er sæmilega stór, en ekki eins stór og við héldum, miðað við legginn. Hinir fá að vera aðeins lengur.  Við tókum upp 3 gulrætur, eina pínulitla og trénaða, eina miðlungs og eina ágætlega stóra. Nú förum við að taka upp eftir þörfum,



 Rifs og sólber vantar herslumuninn á að vera fullþroskuð, en það verður góð uppskera. Tók þessar myndir ef ske kynni að þrestirnir yrðu á undan okkur að tína berin. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive