Í Hafnargerði pottaði ég nokkrar fallegar silfurreyniplöntur og nokkrar af kasmírreyni. Þær eru mjög fallegar, en svo margar að nokkrar verða gróðursettar núna. Byrjaði að undirbúa ker sem á að færa inn í röðina.
Hlynurinn sem fluttur var úr Svínadal og virtist hálfdauður lengi vel ætlar ekki alveg að gefast upp og er nú fallega laufgaður. Eins og er gnæfir garðabrúðan yfir hann og hlífir, skyldi það breytast næsta ár?
No comments:
Post a Comment