Monday, July 14, 2014

Mánudagur 14. júlí 2014

Sólarlítið í dag og lítil úrkoma, nokkrar síðdegisskúrir. Kl. 22 var 14°C og N1. Úrkoma sl. viku var  26 mm. 
  Fór eftir kvöldmat og skoðaði mig aðeins um, grasið er orðið svakalega hátt og allt var rennandi blautt eftir úrkomuna. Gerði lítið, setti skrautlaukana frá Sædísi í ker. Undirstaðan í kerinu er skítur úr einum karmi og mold sem ég var að losa úr ýmsum pottum. Setti nýja mold ofan á og fyllti kerið vel, reikna með að undirstaðan sígi vel saman. Blandaði svolitlum sandi í moldina, þarf að bæta aðeins við þegar ég næ þurrum sandi, hann er svakalega þungur svona blautur.
  Fór með klippur og snyrti til birki sem er vestan við akurinn og tvístofna. Það hefur dregist langt aftur úr 2 öðrum trjám, annað var alltaf einstofna og hitt lagaði ég til fyrir 2 árum og það tók mjög vel við sér. Tók líka greinar af einu reynitré sem er neðan við klettinn, það er eitt af gömlu reynitrjánum og við klipptum það niður fyrir löngu og það er margstofna. Ákvað að prófa að móta það með klippingu, vonandi verður það fallegra.  Ég tók nokkrar rauðrófur úr bökkunum sem eftir voru og potaði þeim í kerin þar sem ég sá pláss, nokkur fóru í kerin hjá aspasi og salati og nokkur hjá spergilkáli. Það sem eftir er er bara rusl sem á eftir að henda. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive