Saturday, July 5, 2014

Laugardagur 5. júlí 2014

Kalt og hryssingslegt veður í dag, 9°C og N11-15 m, sólarlaust. Svipað veður var í gær og í fyrradag rigndi heilan helling, svo ekki hefur verið unnið mikið þessa daga. Í dag pottaði ég eikurnar frá trjáklúbbnum, 30 í djúpa rósapotta og 28 í ferkantaða aðeins minni potta. Áður pottaði ég nokkur stykki á Mógilsá.
  í gær tókum við upp 15 aspir af akrinum, þær eru í mjög góðum vexti. Við byrjuðum að setja niður í skjólbeltið við akurinn, þar er kafli þar sem gömlu aspirnar vaxa minnst og þar brotna skjólgrindur nærri því árvisst.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive