Friday, July 18, 2014

Föstudagur 18. júlí 2014

Hellirigning fyrri hluta dagsins, en heldur minni rigning síðdegis. 14°C og A5.
  Síðdegis fór ég niðureftir og tók svolítið til í körmunum, þar er ýmislegt sem þarf að komast niður í mold í sumar. Endaði á því að fara með áburð og bera á plöntur uppi við þjóðveg, fyrst norðan vegarins og svo sunnanmegin, bar á viðjur, birki og reynitré og fikraði mig svo áfram og bar á litlu birkin og víðinn sem vaxa þar. Margar plöntur hafa kalið niður í vetur og eru enn ekki búnar að ná sömu hæð og í fyrra. Halldór var áður búinn að fara með áburð upp með girðingunni og bera á  plöntur þar, m.a. brekkuvíðinn og líka aspargræðlinga neðan við lækinn. Við höfum sparað svolítið áburð undanfarin 2 ár, það borgar sig sennilega vel að bera á. Norðurstykkið fékk áburð snemma í sumar og þar er gríðarlegur vöxtur, eins á trjánum það sem hænurnar gengu um í fyrra, en minna annars staðar.
Reitti illgresi úr körmum, það vex vel í þessu tíðarfari, eins og grasið sem ætlar allt að kæfa.
Höfuðlaukur, skessujurt, taragon í keri. Líka villijarðarber og fjóla sem hefur náð að sá sér þarna og gott ef ekki er að koma upp ein kartafla frá í fyrra hér eins og víðar. Í næsta keri eru svo kartöflur.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive