Sunday, July 6, 2014

Sunnudagur 6. júlí 2014

Í dag var 12°C en vindbelgingur. Sólskin. Úrkoma sl. viku var 24 mm.
  Við héldum áfram þar sem frá var horfið á föstudag og settum niður alls 50 aspir utan við austurgirðinguna (3 innan við) innan um jörvavíðinn sem fór þarna niður í fyrra og nyrst settum við 1 bakka af loðvíði 'Ugga' úr fp35, 1 planta var dauð. Við settum vel af skít, sem búið var að bragðbæta með sveppamassa og blákorni, með hverri plöntu.
Nýgróðursetningar; sjást varla upp úr grasinu. Næsta mynd eftir 5 ár!

Þá settum við 15 birki í holtið austan við vinnusvæðið, þar er ennþá eyða í skjólhringnum. Loks settum við í skrautreitinn sunnan við bílastæðið, 2 furur sem voru í pottum hjá Brynju og Stjána, 4 rósir, líklega rauðblaðarósir. Þær eru af fræi frá Mógilsá, af mjög stórri og flottri plöntu þar við bílastæðið. Allar rósirnar þar eru frá Kamtsjaka ef ég man rétt. Einn klukkutoppur var líka í potti hjá Brynju og fékk að fljóta með. Nokkrir klukkutoppar hafa lifað af á svæðinu og blómstrað í sumar. Að lokum fór eitt hélurifs með. Serbíugrenið sem gróðursett var sl. haust var steindautt. Furan mjög ljót, en ekki steindauð, hún fær að vera lengur.
  Tók svo upp allar seljur sem voru á kafi í grasi í beði á akrinum. Fann 20 stykki og setti til bráðabirgða í 3 potta.
Gulrót nr. 2, sú fyrri (19. júní) var 5 cm, en þessi er 9 cm.

Fyrstu bláu kartöflurnar teknar upp, 12 flottar (en smáar) kartöflur og mjög bragðgóðar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive