Wednesday, July 23, 2014

Miðvikudagur 23. júlí 2014

Hlýr dagur, skúrir, hæg A-átt og 17°C. Við skruppum í Hafnargerði og tókum svolítinn skurk í illgresi, það sprettur ljómandi vel á akrinum. Í gær gróðursettum við ofarlega í heimagarðinn, seljurnar frá Finndísi á Höfn (16 stykki + 3 ræflar) og viðjugræðlinga frá því í vor, 25 græðlingar. Viðjan var klippt í garðinum í Austurholti og var í fp35 inni á Mógilsá. Þar óx hún vel í fyrstu, en fékk svo leiðinlegt ryð og leit ekki allt of vel út. Ræturnar voru hins vegar góðar. Seljurnar voru á beði á akrinum og uxu lítið þangað til í vor, en ég tók þær upp fyrir stuttu þar sem þær voru komnar á kaf í gras.
  Í lokin tókum við illgresi úr akrinum. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive