Í dag var ágætt veður, hæg SV átt og 5°C. Sól með köflum. Við fórum í skógræktina á Akranesi og klipptum aspargræðlinga, 130 voru settir niður, bæði syðst og nyrst á lóðinni, í bland við 40 viðjur? sem við klipptum af runna í ruðningnum. Þá fóru 10 sprotar af jörvavíði í norðurstykkið, en þar hefur jörvavíðirinn vaxið gríðarlega vel og þessir græðingar voru klipptir af einum góðum runna.
Að þessu loknu settum við upp skjólgirðinguna A megin við vinnusvæðið. Það var heilmikið mál, Halldór rak niður staur fyrir annan sem hafði brotnað og lagaði þverspýturnar. En þetta hafðist og nú geta bæði hlynur og alpareynir farið að búa sig undir sumarið.
 |
| Horft til suðurs frá horni vinnusvæðis. |
|
|
|
|
|
|
Vinnusvæðið eins og það lítur út í dag, það á eftir að breytast mikið á næstu vikum.
No comments:
Post a Comment