Friday, April 15, 2016

Föstudagur 15. apríl 2016

Í dag var 6°C og hæg NA og breytileg átt. Hjá Sædísi var glerið tekið af körmum, illgresi reitt og vökvað áður en lokað var aftur.
Í vikunni fórum við Halldór og gerðum 3 ker klár fyrir gulrætur, sóttum skít og mokuðum moldinni úr kerjunum og í aftur. Enduðum eins og alltaf með því að setja hreina, nýja mold ofan á þá gömlu og skítablönduðu.  Í dag sáðum við í 3 ker, nr. 8, 25 og 26. Þá eru samtals 7 ker með gulrótum. Þau voru 5 í fyrra og það var ekki nóg, en við seldum og átum hverja einustu, bæði stórar og smáar. Þeim var sáð heldur síðar, vonandi fáum við góða uppskeru í ár.
Halldór klippti 50 græðlinga af sjálfsánum runna við veginn út til Gústa og Svenju, hugsanlega er þetta viðja. Við stungum þeim niður í nánd við móðurplöntuna.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive