Kaldur dagur, N13. 2-3°C og sólarlítið. Snjókoma snemma í morgun, en annars lítil úrkoma.
Við fórum í Hafnargerði og byrjuðum að setja upp skjólgrindur við vinnusvæðið, náðum um það bil helmingi. Svo kláruðum við að hreinsa grasrót af skjólgóðu svæði við akurinn, þar sem perutré voru fyrst góðursett (löngu dauð). Þarna er hugmyndin að setja eikur og berjarunna.
Við skoðuðum aðeins NV stykkið þar sem aspir og greni vaxa afar hægt. Jörvavíðirinn vex hins vegar mjög vel. Við klipptum vel niður nokkra brúska og stungum græðlingunum beint niður, alls 75 stykki. Þarna settum við niður 1 bakka af birki frá Ræktunarstöðinni árið 2009, og það hefur dafnað mjög vel, er að verða fallegt belti. Lærdómurinn: meira birki og meiri jörvavíðir.
Heima í Austurholti er jólarósin að blómstra, skrautlaukur Sædísar er að koma upp og bóndarósin sýnir lífsmark.
Sunday, April 17, 2016
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2016
(61)
-
▼
April
(12)
- Föstudagur 27. apríl 2016
- Fimmtudagur 21. apríl - Sumardagurinn fyrsti.
- Miðvikudagur 20. apríl 2016 - síðasti vetrardagur
- Sunnudagur 17. apríl 2016
- Laugardagur 16. apríl 2016
- Föstudagur 15. apríl 2016
- Mánudagur 11. apríl 2016
- Sunnudagur 10. apríl 2016
- Laugardagur 9. apríl 2016
- Fimmtudagur 7. apríl 2016
- Miðvikudagur 6. apríl.
- Mánudagur 4. apríl 2016
-
▼
April
(12)
No comments:
Post a Comment