Wednesday, April 20, 2016

Miðvikudagur 20. apríl 2016 - síðasti vetrardagur

NA6, 6°C, sólskin að mestu. Lægði síðdegis og þá var mjög hlýtt í Hafnargerði.
 Við kláruðum að setja upp skjólgrindur við vinnusvæðið og Halldór lagaði það sem þurfti. Það er mesta furða hvað þessi bretti endast lengi.
Við stungum niður nokkrum græðlingum í ruðninginn, enn vantar nokkuð á að runnarnir nái upp fyrir grindurnar og þéttleikinn er heldur ekki mjög mikill. En þetta potast allt upp.
Í gær fór Halldór með 50 aspargræðlinga úr skógræktinni á Akranesi og stakk þeim ofarlega í heimagarðinn, innan um greni sem komið er í góðan vöxt. Ég tæmdi mold úr einu keri, þar höfðu villijarðarberin sáð sér óvart fyllt kerið gjörsamlega. Ég tók hnausa og setti út í móa, á 2 - 3 staði í heimagarðinn og norðan við skurðinn hjá vestfirska víðinum. Vona bara að þau haldi áfram að dreifa sér úti á melnum.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive