Monday, April 11, 2016

Mánudagur 11. apríl 2016

Frábært veður, 6°C, sólskin og logn. Við fórum í Hafnargerði og stungum niður 260 græðlingum af brekkuvíði sem við klipptum í gær við Dílahæð. Þeir fóru í stykki syðst á landinu, aðliggjandi lóð Gústa og Svenju. Þar voru fyrir grenitré og aspir sem orðnar voru allstórar en fóru mjög illa í skara veturinn 2014-15 og við erum að reyna að þétta með runnum. Fundum nokkrar litlar viðjur sem við stungum niður í fyrra, þær tóra.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive