Saturday, April 9, 2016

Laugardagur 9. apríl 2016

Gott veður í dag, 8°C og NA6, sólskin.
Svolítil gola í Hafnargerði, en lægði þegar leið á daginn. Við fórum þangað síðdegis með Ingibjörgu og Áslaugu og fórum heim um kl. 17 til að ná í sundið. Þær voru mjög ánægðar og hefðu alveg getað leikið lengur.
Við sáðum gulrótunum í þau 4 ker sem voru tilbúin, með skít neðst, og trefjadúk yfir, nú ætti ekki að væsa um þær næstu vikurnar. Svo tókum við græðlinga af 'Ugga' í 5 bakka, 3 fp35 og 2 fp40, þeir fara á Mógilsá. Að auki stungum við 25 græðlingum beint, í heimagarði. Uggi er mjög fallegur á þessum tíma, "gæsaungarnir" eru fallega steingráir og loðnir, allt öðruvísi en aðrir runnar af víði. Við stungum líka 35 aspargræðlingum í stykkið SA við vinnusvæðið, þar fóru fallegar aspir mjög illa í skafrenningi fyri 2 árum, og við þurfum að þétta gróðurinn þar, líka með brekkuvíði og loðvíði.
Við snyrtum aðeins til stærsta reynitréð í ruðningnum, það er margstofna og virðist of þungt fyrir rótina. Við klipptum stóra grein af og bundum stofninn fastann.

Hér eru gulræturnar komnar undir dúk og ætti ekki að væsa um þær. Vel fest reynitré í baksýn.
Svo settum við út úrkomumælinn. Jörðin er vel rök, en það hefur verið ágæt tíð og hvorki of þurrt né of blautt. Ennþá talsvert frost er í jörðu.
Ingibjörg og Áslaug höfðu ýmsu að sinna. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive