Saturday, April 16, 2016

Laugardagur 16. apríl 2016

Hryssingslegt veður, 6°C og S8, rigning.
Sáði hjá Sædísi hnúðkáli, 2500 fræ í 6 sáðbakka og einn bakka af brokkólí. Við skruppum í Hafnargerði síðdegis, en vorum þó ekki lengi. Halldór tók niður sjálfsána viðju? í mýrinni og stakk græðlingum allt í kring. Ég hélt áfram að skera grastorfur af svæðinu þar sem perutrén voru upphaflega, þar á að setja niður eikur og  berjarunna í skjóli við aspir og greni.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive