Thursday, May 25, 2017

Fimmtudagur 25. maí 2017 - Uppstigningardagur

Skúrir, hægur vindur og 14°C.
Við gróðursettum svolítið í dag, 15 birki, 12 syðst, næst girðingu Svenju og 3 í litla skrúðgarðinn við bílaplanið. Setti líka 1 gullregn þar. Svo setti ég niður 5 geislasópa í urðina við steininn. Framan við gamla gráelrið. Þar setti ég 5 meyjarrósir í fyrra. Þær eru lifandi, svo sem ekki stórar og hefur kalið svolítið. Klippti þær til og gróðursetti geislasóp við hverja þeirra. Svo var smávegis stússað í gróðurhúsinu, matjurtirnar eru í fullum vexti og virðast hafa það mjög gott. Húsið er núna opið allan sólarhringinn, það er bara ágætt loft þar inni. Priklaði nokkrar hrossakastaníur, þær vaxa mjög vel. Svo sáði ég elri í einn lítinn bakka, blandaði smávegis mold frá gömlu elri saman við.  Setti út einn kassa með hvítlauknum nýja. Sá gamli var svo vesældarlegur þangað til hann fór út, þá tók hann allur við sér.

Blóðrifsið er ennþá í fullum blóma, virðist ekkert vera að dofna yfir því.  Gamla blóðrifsið er að byrja að blómstra

No comments:

Post a Comment

Blog Archive