Aftur frábært veður í dag, mjög heitt og sólskin allan daginn. Svolítil gola þegar leið á daginn.
Við vorum svakalega dugleg í dag. Ég fór niðureftir fyrir hádegið og vökvaði allt inni í gróðurhúsinu mjög vel. Svo mokaði ég upp úr heilum karmi, skít frá því í fyrra eða hitteðfyrra, í honum var svo mikið af villijarðarberjum að mér fannst best að sturta þessum jarðvegi milli þúfna og sjá til hvort þau lifa.
Við komum fyrir þriðja karminum með jarðarberjum 'Glíma' úti á akri og Halldór festi hann niður og lagaði hina tvo í leiðinni. Nú eru tæplega 150 jarðarberjaplöntur í ræktun. Vonandi nóg til að seðja litlu gestina okkar í sumar. Svo fundum við þrastarhreiður, inni í greinaþykkni í grenitré. Það gladdi okkur mikið.
Að lokum fór Halldór um svæðið og klippti dauðar greinar af trjánum og snyrti, ég gerði 12 holur í viðbót með hakanum, allt tilbúið fyrir næstu rigningu.
Gráelrið við steininn var einu sinni stærsta tréð á svæðinu. Sú tíð er löngu liðin, en það er ennþá með þeim fallegri. Eitt sumarið héldum við að það væri kalið ofan við miðju, en það tók 2 ár að jafna sig, og nú laufgast það upp í topp. Við hliðina er sitkaelri, mikil blómgun það í gangi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2017
(62)
-
▼
May
(15)
- Miðvikudagur 31. maí 2017
- Þriðjudagur 30. maí 2017
- Mánudagur 29. maí 2017
- Sunnudagur 28. maí 2017
- Fimmtudagur 25. maí 2017 - Uppstigningardagur
- Þriðjudagur 23. maí 2017
- Sunnudagur 21. maí 2017
- Laugardagur 20. maí 2017
- Þriðjudagur 16. maí 2017
- Mánudagur 15. maí 2017
- Sunnudagur 14. maí 2017
- Laugardagur 13. maí 2017
- Sunnudagur 7. maí 2017
- Laugardagur 6. maí 2017
- Mánudagur 1. maí 2017
-
▼
May
(15)

No comments:
Post a Comment