Saturday, May 6, 2017

Laugardagur 6. maí 2017

Frábært veður frá því á fimmtudag. Glampandi sól alla daga og 15-17°C. Allur gróður hefur tekið kipp og tré hamast við að laufgast og blómstra. Við erum byrjuð að prikla brokkólí og hnúðkál. Það tekur sig vel út í gróðurhúsinu.


Hér er allt að gerast, undir akryldúknum er danski hvítlaukurinn "Estisk rød" að spíra af kappi, og úlfareynir, bergreynir og yllir að taka sig í pottum. Einn pottur með myntu, sem að sögn fælir mýs frá. Sjáum nú til með það.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive