Frábært veður í dag, nánast logn og 12°C. Sól framan af degi, en skúrir síðdegis. Síðustu 4 daga hefur verið brjálað veður, kalt og hvasst, en ekki frost. Ekki sáust skemmdir á gróðri, þvert á móti er allt að laufgast, Hafnarskógurinn kominn með græna slikju.
Í dag kláraði ég loksins að prikla og nú er orðið nokkuð þétt í gróðurhúsinu.
Samtals:
Það er ótrúlegt, en aðeins fáeinar páskaliljur brotnuðu í rokinu, bráðum fer þetta að verða heilleg breiða.
Þessar tvær sýndu aðra liti.
No comments:
Post a Comment