Tuesday, May 23, 2017

Þriðjudagur 23. maí 2017

Það var heldur kaldara í dag en undanfarið, 12°C, sól af og til og skúrir á milli.
Notaði tækifærið og gróðursetti í holurnar sem ég gróf um daginn.
2 stk kasmírreynir, 7x rauðtoppur, 5x fjallaplóma, 10x garðasýrena fóru í stykkið austan við akurinn, þar er nú mikið magn af garðasýrenu og restin komin út. Það voru til 7 rauðtoppar og 5 fjallaplómur, gróðursetti það allt og ætla ekki að fjölga þeim meira í bili. Í urð ofan við þetta svæði gróðursetti ég nokkrar furur í fyrra. Þær voru vesældarlegar og brúnar, bætti við 8x myrtuvíði og 4 græðlinga frá því í fyrra af jörvavíði. Reyni smám saman að græða þennan blett.
Gullregnið frá því í fyrrahaust er að lifna og lítur bara mjög vel út, þar var einn vatnsberi, setti restina af þeim þar hjá, 6 stykki.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive