Tuesday, May 30, 2017

Þriðjudagur 30. maí 2017

10°C og rigning, hvasst fyrri hluta dagsins.
Við fórum til Reykjavíkur og fengum lánaða annan staurabor, en sá var ennþá lélegri en sá fyrri sem við fengum lánaðan, svo ekki verður meira borað í bili.
Stærsti hluti dagsins fór í útréttingar í Reykjavík, og m.a. keyptum við 2xfp40 af birki 'Emblu' frá Tumastöðum, en það er til sölu í Ikea á afskaplega hagstæðu verði, 2500 kr. bakkinn, sem Sædís er að selja á 7.200 kr.
Í Hafnargerði lítur allt vel út, plönturnar dafna úti og inni og hafa ekkert látið á sjá í rokinu sem var í gær.


Hlíðaramallinn blómstrar svo fallega í kerinu. Hann hefur félagsskap af hvítlauk sem er að koma upp síðan í fyrra. 

Borinn ógurlegi
Hófsóley sem gróðursett var í fyrra í bleytu við lækinn, hnaus fenginn úr Skallagrímsgarði. 

nn

No comments:

Post a Comment

Blog Archive