Saturday, May 20, 2017

Laugardagur 20. maí 2017

Frábært veður í dag og síðdegis í gær, 15°C, hægur vindur og sólskin. Miðvikudag og fimmtudag var skítakuldi og fram eftir föstudegi, en það var ekki frost.
Í Hafnargerði byrjaði ég að prikla hlyninn frá Lundi, tók ca 1/3 og það urðu um 30 fallegar plöntur. Svo er ég að gera holur til að  gróðursetja í, það er fínt að gera holur með hakanum í þurrki og gróðursetja næst þegar ringt hefur.
Í gær fór ég með restina af sætum kartöflum og gróðursetti í kerið. Maísinn er í lagi og byrjaður að blómstra, sætu kartöflurnar eru flottar og sú fyrsta þurfti nokkra daga til að jafna sig. Tómatplönturnar tvær eru hins vegar frekar aumingjalegar og baunirnar varla farnar að spíra.

En svona lítur kerið út núna. Setti vírnet við endann svo vafningsplönturnar hafi eitthvað að styðjast við.


Svo eru páskaliljurnar alltaf að verða fallegri, nú verð ég að hætta að taka myndir af þeim, enda sýnist þetta ekki vera neitt sérstakt á þeim.
Svo tengdi Halldór vatn, svo nú er rennandi vatn á vinnusvæðinu. Vökvaði hvern einasta pott og bakka sem er úti.
Í morgun fór ég svo á Mógilsá og sótti dalíurnar, þær líta bara vel út, einkum þessar rauðu sem Brynja á, en ég skipti þeim í haust.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive