Thursday, May 21, 2015

Fimmtudagur 21. maí 2015

Í morgun var sólskin og 3°C. Ég fór í Hafnargerði til að opna karmana, en þegar ég kom niðureftir var komin snjókoma. Ég hætti því við. Það voru él fram eftir degi, en sólin fór að skína þegar leið á daginn. Kl. 19 var 5°C, NA8 og sólskin. Fór samt ekki til að opna, vona að þetta hafi sloppið. Halldór fór síðdegis og vann í skjólgirðingum.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive