Friday, May 22, 2015

Föstudagur 22. maí 2015

Frábært veður í dag, hiti tæp 10°C, sólskin og nánast logn allan daginn.
 Mikið afrekað í dag. Hnúðkáli sáð í beð nr. 12 (2500) og sandi stráð yfir. Þá gróðursettum við á eyðimörkinni austan við lækinn; 75 loðvíði, 7 klukkutoppa og 30 sifjarlerki. Svo tókum við ca 20 smáar lúpínur og settum innan um þessar tráplöntur, en þær fóru allar á sama svæðið, neðarlega, en þar var nær enginn gróður fyrir. Við fundum talsvert af birki og loðvíði frá því í fyrra, sumar plönturnar voru komnar upp úr moldinni og voru gróðursettar aftur. Það höfum við gert oft áður, fyrir rest festa þær sig og byrja að vaxa.
  Að þessu loknu bárum við áburð, Halldór fór niður með girðingunni og bar á þar, ég bar á vestan við vinnusvæðið og austan við veginn, endaði um það bil við skrautlundinn minn hjá stóra gráelrinu, plönturnar eiga erfitt uppdráttar þarna. Elrið er fallegt þarna og víða annars staðar, og þarna er fallegasti geislasópurinn sem ég á.
  Tók 2bakka fp40 af græðlingum af loðvíði. Aldrei áður hefur verið hægt að taka græðlinga svona seint.
  Það er svo skondið, að í þessu kalda vori höfum við náð að tæta akurinn og sá í hann fyrr en nokkurn tíma áður. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive