Thursday, May 7, 2015

Fimmtudagur 7. maí 2015

Sólskin, frost alla nóttina og 1-5°C yfir daginn. Árleg priklun fór fram á Mógilsá og ég fékk fyrir mig nokkra aska, einhverja tegund sem Aðalsteinn kom með frá Þýskalandi, 1 mjög fallegt svartelri og 4 frekar væskilslegar plöntur sem heita Cornus cornata? eða Hesli. Búin að potta þær, en þær virtust með mjög lélegar rætur.
Í gær kláraði ég að prikla fyrstu sáningu af hnúðkáli, það er í húsi 1 hjá Sædísi, enda engin möguleiki að flytja plönturnar í Hafnargerði núna.
Í þetta sinn sáði ég 1 bréfi (2500) af hnúðkálií 4 bakka með viku millibili. Sjaldan eða aldrei hafa plönturnar verið fallegri og hraustlegri. Það eru engin merki um svartrót og spírunin virtist afar góð. Þessi skammtur fór í 9xfp54 (hvítu bakkana) og hluti fór í litla potta, samtals 8x28 = 710 plöntur. Þá priklaði ég 3 fp54 af hvítu hnúðkáli frá Sædísi og 2 af rauðu hnúðkáli fyrir nokkrum dögum, þetta lítur allt vel út.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive