Saturday, May 30, 2015

Laugardagur 30. maí 2015

Þokkalegt veður, skúrir, 10°C og N4. Sólskin með köflum en rigndi meira síðdegis og hvessti undir kvöld.
Við sóttum skít í hesthúsið til Marteins og mokuðum honum í 6 ker. Svo mokuðum við mold yfir skítinn. Á morgun á að setja kartöflusortirnar í kerin og fljótlega setjum við líka niður kartöflur út á akur.
 Í gær gróðursetti ég 2 skriðmispla og 2 klukkutoppa ásamt nokkrum hnausum af burnirót og húslaukum. Þetta fór í skrautbeðið mitt, þar sem ekkert vill vaxa. Hætti ekki fyrr en þetta kemst af stað. Við fórum líka með áburð á stór svæði.
Gróðurinn er aðeins að taka við sér, loksins.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive