Saturday, May 9, 2015

Laugardagur 9. maí 2015

Gott veður í dag, nokkuð hlýtt eða um 10°C og sólskin. N5 og kalt þar sem ekki var skjól. Við klipptum græðlinga á Borg, og Halldór fór eina ferð þangað á fimmtudaginn, svo nú erum við birg þetta árið. Við setjum allt niður, bæði fallega endagræðlinga og lurka þó svo að ekki sé mælt með því í garðyrkjufræðunum. Í dag settum við niður 25 mjög flotta endagræðlinga í bakkann nálægt hliðinu, vestan við viðjuna sem þar hefur staðið í 7 ár og er orðin rúmur meter á hæð. Nokkru vestar, eða í bakkann neðan við lækin settum við 30 græðlinga, bæði endagræðlinga og lurka og svo 20 mjög svera lurka austan við vinnusvæðið, þar höfum við núna og 2014 sett mikið magn græðlinga sem ekki eru farnir að sýna mikinn vöxt ennþá.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive