Thursday, May 28, 2015

Fimmtudagur 28. maí 2015

Hiti 6°C, N6, sólarlítið. Nokkur snjókorn féllu í dag.
Við fórum síðdegis í Hafnargerði og gróðursettum í Sædísarlund nokkur tré sem hún hefur gefið okkur. 5 lerki 'Hrymur', 4 snæreyni (Sorbus forrestii) og 2 borgarfjarðarbirki. Svo fórum við með áburð og bárum á allar smáplönturnar á eyðimörkinni neðan við þjóðveginn. Birkið er varla farið af stað, en við fundum talsvert margar plöntur af brekkuvíði sem eru að komast vel á legg.
  Í gær gróðursettum við það sem eftir var af sifjarlerki (32 stykki) á sama stað og fyrri hlutann.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive