Sunday, May 31, 2015

Sunnudagur 31. maí 2015

Fínasta veður í dag, N8 og sólskin, hiti fór upp í 14°C. Við vorum mjög dugleg í dag og í gær.  Við kláruðum í dag að ganga frá kerjunum fyrir kartöflurnar og settum allar sortirnar niður. Svo gróðursettum við 22 tré, nú eru komin 1000 tré og græðlingar á þessu voru, sem er að sjálfsögðu met. Það sem var gróðursett voru 16 aspir (úr reit á akrinum) þær fóru í stykkið NV við akurinn. 2 reyniviðir og 3 stafafurur úr pottum, 1 græðlingur af blæösp síðan í fyrra, hann var í potti með burnirót og þetta allt fór í heimagarðinn þar sem blæaspir, sýrenur og páskaliljur fóru niður í fyrra.
Við vorum aðeins að taka til í garðinum í Austurholti í morgun og ég fór með stóra hnausa af ramfangi og setti hér og þar, það sem ég setti niður í fyrra dafnar vel, eins og prímúlurnar, sem núna eru að byrja að blómstra.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive