Í dag var brokkólíið priklað í nokkrar stærðir af pottum; 1x54(-6), 6x15 bakkar og 7x25 jógúrtdósir = 310 plöntur. Þetta fór í karm 4A, nema einn bakki í 2A. Þangað fór líka 1 pottur með 2 kúrbítum. Aðrir 20 fóru í allstóra potta og fóru aftur í gróðurhúsið til Sædísar og 5 grasker í stórum pottum.
Á fimmtudaginn (14.5) priklaði ég rest af hnúðkáli, 15xfp54. Þá fórum við líka í hesthúsin í Borgarnesi (til Marteins hennar Sirrýar) og sóttum kerru af skít. Nýr, mikið sag og moð og rýkur úr honum, alveg eins og við viljum hafa hann. Priklun matjurta er þá lokið. Hvítlaukurinn kominn út í ker 4-8.
Það hefur verið hlýtt alla þessa viku og því er spáð áfram, en gróður er rétt að byrja að taka við sér. Við byrjuðum líka að bera á áburð, trjákorn, en erum búin að keyra út talsvert af skít, einkum Halldór.
Ekki er útilokað að gulrætur séu næstum byrjaðar að spíra.
Svona lítur rauðviðurinn/risafuran út þessa dagana, heldur veðurbarin eftir veturinn. Sitkagreni og stafafura eru lítið betur útleikin, það verður fróðlegt að sjá hvort þau ná sér á strik í sumar.
| Fallegasta furan sumarið 2014, heldur dapurleg vorið 2015. |

No comments:
Post a Comment