Monday, May 25, 2015

Mánudagur 25. maí 2. í hvítasunnu

Ágætt veður fram eftir degi, hiti 6°C, að mestu skýjað, SA6.
Við fórum með afganginn af aspargræðlingunum upp á bakkann. Þetta voru 80 stórir græðlingar og lukar af keisaraöspinni frá Borg og 50 af öspunum okkar í skjólbeltinu. Örfáir græðlingar af jörvavíði, við notum þá stundum sem rótarhvata. Við fórum svo með áburð á stykkið norðan við hliðið, þar á gróður afar erfitt uppdráttar, en lúpínan er að hasla sér völl. Smáplöntur af jörvavíði frá því í fyrra og hittifyrra með mikið kal. Lerkið sem við gróðursettum fyrir 2 árum virðist næstum því allt dautt. Það er helst elrið sem lítur vel út.
Í gær, hvítasunnudag, kom Haraldur í Belgsholti með mold. Hún var sett í haug á bak við gáminn, dúkur yfir og undir. Þá fórum við upp á bakkann með aspargræðlinga, 130 stykki með góðri aðstoð frá Ingibjörgu og Láru. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive