Thursday, May 22, 2014

Fimmtudagur 22. maí 2014

Fínasta veður í dag og í gær, að mestu þurrt. Hæg gola og hiti fór í um 9°C yfir daginn, samkvæmt bílnum mínum var ennþá 9°C kl. 21.
  Halldór byrjaði að plægja akurinn í dag og náði að tæta miðstykkið vel og búa til beð. Ég byrjaði aðeins að raka og tína grastorfur. Þá verður hægt að sá og setja niður kartöflur um helgina.
  Við fórum í gær með 25 aspargræðlinga upp á holtið, á sama stað og síðast, þar verður þéttur lundur þar sem mesta vindálagið er ef þessir græðlingar komast á legg.
  Halldór vann áfram í skjólgirðingum og ég setti niður kartöflur 'Sauðlauksdal' í eitt ker.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive