Monday, May 5, 2014

Mánudagur 5. maí 2014

Frábært veður, sólskin og 13°C. Logn fram eftir degi, en blés svolítið undir kvöld.
 Gulrótum var sáð í tvö ker og radísum með. Fyrri gulrótasáningin er farin að spíra vel, ég reitti illgresi sem líka var farið að spíra í kerinu.
  Bláar kartöflur fóru í eitt ker, ég setti 12 í kerið og á afgang ef þessar frjósa.
  Stakk loðvíðigræðlingunum í bakka og vökvaði vel, gróðursetti 8 jarðarber í lágan fiskikassa sem stendur á pallinum.
  Fór í stuttan göngutúr, allt er að lifna og gaman að fylgjast með fuglalífinu þessa dagana.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive