Laugardagur, 10°C, sól með köflum, A3.
Við unnum við að undirbúa priklun. Ég sótti fyrstu sáningar til Sædísar, það eru 2 bakkar, lauslega áætlað verða þetta 48 bakkar, eða tæplega 3 karmar. Svo kemur annað eins eftir viku og þá er allt spergilkálið eftir. Enn og aftur erum við að sá óþarflega miklu.
Það þurfti að klára að moka gömlum skít upp úr körmunum og setja nýjan í. Skíturinn sem við fengum er blautur og ekkert sag í honum, þess vegna er erfiðara að vinna með hann. Svo þurfti að blanda mold og loks að fylla bakka og prikla. Þetta gekk ágætlega og stefnt er að því að klára priklið í dag. Það rigndi í nótt, en ætti að hanga þurrt síðdegis í dag.
Við fylltum nokkrar fötur af gömlum skít og fórum með þær upp á eyðimörkina, þá eru þær tilbúnar ef okkur áskotnast meira birki. Það er reyndar heill karmur fullur af smáplöntum, en þær voru pottaðar í fyrra og liggur ekki endilega á að setja þær út, nema ef við þurfum að losa pláss.
Við klipptum líka viðjuna bakvið húsið í Austurholti, limgerðið er orðið 2 m hátt og við tókum það aðeins niður, það má klippa það miklu betur, en látum það bíða í bili.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
May
(13)
- Fimmtudagur 29. maí 2014 - Uppstigningardagur
- Þriðjudagur 27. maí 2014
- Sunnudagur 25. maí 2014
- Fimmtudagur 22. maí 2014
- Þriðjudagur 20. maí 2014
- Laugardagur 17. maí 2014
- Föstudagur 16. maí 2014
- Sunnudagur 11. maí 2014
- Þriðjudagur 6. maí 2014
- Mánudagur 5. maí 2014
- Sunnudagur 4. maí 2014
- Laugardagur 3. maí 2014
- Föstudagur 2. maí 2014
-
▼
May
(13)
No comments:
Post a Comment