Fínasta veður í dag og í gær, hitinn fór upp í tæpar 10°C báða dagana, og alveg niður undir frostmark á nóttunni.
Úrkomumælirinn var losaður á sunnudaginn, þá voru 24 mm, samtals 54 mm undanfarna viku. Þurrt frá og með sunnudegi og áfram er spáð þurkki fram á föstudag.
í dag og í gær fórum við með 30 og svo 25 aspargræðlinga á svipaðan stað og síðast, efst í landið, þar sem jarðvegur er þykkur, næst Gústa og neðan við lækinn. Það er búið að prikla 1 bakka af rauðrófum og setja í karm, 2 bakkar eru eftir hjá Sædísi.
Byrjaði að prikla ilmreyni úr bakka. Mjög fallegar plöntur og loks tókst mér að sá hæfilega gisið svo auðvelt er að prikla þær og ræturnar eru ekki í einni flækju. Náði að prikla í 2xfp35 og það er um það bil helmingurinn.
Sunnudagur fór í ferðalög, við heimsóttum Rakel og fjölskyldu í sumarbústað í Selborgum og þau fóru svo með okkur að Miðhrauni. Þar hjálpuðum við aðeins til og gróðursettum 5 glæsileg reynitré frá Mörk og fórum með 8 loðvíðiplöntur og 2 körfuvíði í lundinn við Mundukot og í skjólbeltið "okkar". Það lítur ágætlega út, reyniviður og aspir komnar vel af stað, víðir, hengibirki og elri styttra. Loðvíðirinn virðist vera svolítið kalinn, en sýrenur eru komnar vel af stað.
í dag leit ég undir dúkana, örlítil kartöflugrös eru komin upp, og gulrætur eru í góðum vexti. Ég hreinsaði illgresi úr karminum og stráði svolitlu sniglaeitri í kringum plönturnar.
Tuesday, May 20, 2014
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
May
(13)
- Fimmtudagur 29. maí 2014 - Uppstigningardagur
- Þriðjudagur 27. maí 2014
- Sunnudagur 25. maí 2014
- Fimmtudagur 22. maí 2014
- Þriðjudagur 20. maí 2014
- Laugardagur 17. maí 2014
- Föstudagur 16. maí 2014
- Sunnudagur 11. maí 2014
- Þriðjudagur 6. maí 2014
- Mánudagur 5. maí 2014
- Sunnudagur 4. maí 2014
- Laugardagur 3. maí 2014
- Föstudagur 2. maí 2014
-
▼
May
(13)
No comments:
Post a Comment