Monday, May 5, 2014

Sunnudagur 4. maí 2014

Rigning framan af degi, svo stytti upp og síðdegis var 11°C hiti, logn og sólskin. (9°C samkvæmt veðurstofu).
Við fórum eftir hádegi niðureftir og héldum áfram að prikla hnúðkál. Halldór blandaði mold, 1 hjólbörur af mold og 1/2 fata af sveppamassa og 1/2 af moltu í hverja blöndu. Fyrsta sáning gaf 2 fulla karma og 1 bakka að auki (1998 plöntur). Við vökvuðum vel, breiddum akryldúk yfir og lokuðum með plastlokunum. Halldór mokaði gömlum skít upp úr næsta karmi og ók með hann upp á holtið og bar á trjáplöntur.  Það hefur verið eindæma góð tíð undanfarið og trjágróður er farinn að lifna, mun fyrr en á síðasta ári.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive