Hellirigning allan daginn. Rok og rigning í gær og í nótt, en heldur lægði í dag. 8°C. Úrkoma vikunnar 22 mm.
Við opnuðum alla karma og létum þá standa opna í 2 tíma, létum þá vökvun nægja. Í gær gat ég priklað í 6 svarta bakka hjá Sædísi (þar eru núna 11) og í dag priklaði ég í 5 fp54 og fyllti karm í Hafnargerði. Enn er einn sáðbakki (af þremur) eftir og svo er komið að spergilkálinu sem er óvanalega seint á ferð í ár.
Í gær fórum við með afganginn af aparlurkunum frá Borg, þeir sverustu voru einir 5 cm í þvermál. 8 stykki fóru utan við skjólgirðinguna austan við vinnusvæðið. Það sjást þeir ekki mikið, en við getum fylgst með þeim.
Það var ómöguleg að sá gulrótum eða setja niður kartflur, akurinn var allur á floti.
Sunday, May 25, 2014
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
May
(13)
- Fimmtudagur 29. maí 2014 - Uppstigningardagur
- Þriðjudagur 27. maí 2014
- Sunnudagur 25. maí 2014
- Fimmtudagur 22. maí 2014
- Þriðjudagur 20. maí 2014
- Laugardagur 17. maí 2014
- Föstudagur 16. maí 2014
- Sunnudagur 11. maí 2014
- Þriðjudagur 6. maí 2014
- Mánudagur 5. maí 2014
- Sunnudagur 4. maí 2014
- Laugardagur 3. maí 2014
- Föstudagur 2. maí 2014
-
▼
May
(13)
No comments:
Post a Comment