Thursday, May 29, 2014

Fimmtudagur 29. maí 2014 - Uppstigningardagur

SA8-9 m og 12°C, sólarlítið. Þetta var drjúgur dagur í sveitinni, en langt er síðan þar hefur náðst heill vinnudagur.
Í dag kláraði ég að prikla síðasta spergilkálið og rauðrófurnar. Priklaði svo 20 spergilkál beint í eitt kerið og strengdi akryldúk yfir.  Ég átti salatfræ og setti í einn bakka. 2 bakkar eru lausir.  Við númeruðum kerin og karmana, það er orðið mjög erfitt að halda utan um hvað er hvar í öllum þessum kerjum.
Við settum net á girðingar austan við vinnusvæðið og líka á háu girðinguna á miðjum akri. Svo settum við kartöflur í beðið ofan við þá girðingu, efst smávegis af 'Sauðlauksdal' og íslenskar rauðar frá okkur sjálfum í afganginn af beðinu.
Þá fóru 12 rauðar 'Hárekur' í ker.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive