Sunday, May 11, 2014

Sunnudagur 11. maí 2014

Rigning, A-2, 6°C (kl. 8.30)
  Í gær var þurrt en hvasst, kl. 19 var A10 og 9°C. Það hafa verið hlýindi alla vikuna og aldrei næturfrost. Allur gróður er kominn langt, meira að segja Hafnarskógurinn er að fá græna slikju.
  Ég byrjaði að prikla seinni sáningu af hnúðkáli, fyllti eitt hólf. Það hefur ekki unnist nógu vel síðustu viku, Halldór er lasinn og ég hef mjög mikið að gera í skólanum, fór á námskeið á Hótel Glym og síðasta kennslulotan var í Símenntun.  Halldór náði samt að fara eina ferð í Hafnarfjörð og sótti 4 ker.
   Það rigndi mjög mikið á fimmtudaginn, en var þurrt föstudag og laugardag. Í gær, laugardag, fór úrkomumælirinn út.
Á fimmtudaginn þornaði síðdegis og ég sáði sitkaelri í einn bakka. Ég náði líka að prikla birki úr bakka frá því í fyrra, þetta var rest úr bakkanum og ég náði 200 plöntum. Setti í eins marga potta og ég átti til og restina í fp35. Fínar plöntur.
 Næstu viku er spáð rigningu flesta daga, svo það verður varla hægt að tæta akurinn. Klára þarf að prikla hnúðkáli og svo rauðrófum sem eiga að vera lengur í Gleym-mér-ei.
  Við gátum priklað hnúðkáli í 9 bakka (1 hólf) og Halldór undirbjó 1 í viðbót. Þá fórum við með 75 aspargræðlinga frá Borg upp á holtið austan við akurinn, milli lækjarins og gama lækjarfarvegsins. Þarna er eyða í skjólhringinn sem er að verða kominn umhverfis akurinn og athafnasvæðið okkar. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive