Tuesday, May 27, 2014

Þriðjudagur 27. maí 2014

Í dag var alveg skaplegt veður, frekar hlýtt (12°C) þegar við fórum heim upp úr kl. 20. Hægur vindur.
Við fluttum potta og plöntur úr einum karmi í viðbót, þetta er sá síðasti. Halldór mokaði upp úr og í ker sem hann kom fyrir við ruðninginn, þar erum við að endurraða kerjunum sem komu fyrst með það í huga að laga undirlagið og fjölga. 









Hér er verið að moka ferskum skít í karminn til vinstri, en til hægti sjást fyrstu spergilkálin komin í potta og  bakka ofan á hreinan pappa.

Við þurftum að líma yfir göt á mörgum lokum, fuglarnir setjast á þau og gata þau með klónum.  Það sér ekki fyrir endann á rigningartíðinni, en það hefur verið hlýtt. Við fjarlægðum akryldúkinn úr körmunum, nema því allra nýjasta og vökvuðum vel. Hnúðkálið sprettur ágætlega, einn og einn bakki er samt voðalega lélegur.
  Aspasinn er byrjaður að koma upp, og þótt ótrúlegt megi virðast er hann sverari en sá sem kom upp í fyrra og nokkuð pattaralegur.
Ég ætla að bíða í smátíma, en færa hann svo í ker. Hann er á slæmum stað, neðan við miðju akursins og þegar rignir svona stendur hann í polli. Ég gerði líka þau mistök að setja hann niður of neðarlega. Ég var að hugsa um að nota skjólið af karminum, en hefði betur hækkað jarðveginn. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive