Saturday, May 17, 2014

Laugardagur 17. maí 2014

Ágætt veður, 10-11°C, hæg breytileg átt og skúrir. Sólskin inn á milli.
  Fór til Sædísar og priklaði þar rauðrófur í 5 svarta bakka, Halldór var í Hafnargerði að laga skjólgrindur, nú er næstum því allar grindur komnar upp norðan við vinnusvæðið og komið gott skjól þar. Við fórum líka með 60 aspargræðlinga upp á bakkan austast og syðst, næst þjóðvegi. Þar eru nokkur greni á lífi og mikið af litlum græðlingum, mest síðan í fyrra og hittifyrra, aspir, alaskavíðir, viðja og jörvavíðir. Þetta tekur allt tíma, en bjartsýnin eykst þegar við finnum græðlinga sem eru að taka vel við sér.
  Halldór athugaði akurinn, hann er ennþá allt of blautur til þess að plægja og um miðjan dag kom hellidemba. Nú vantar þurrk í viku, þá gætum við sáð gulrótum og hnúðkáli.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive