Fínasta veður í dag, hiti um 9°C og sólskin með köflum, smáskúrir.
Þessi vika hefur verið drjúg. Búið er að prikla allt hnúðkál og koma bökkunum fyrir í körmum og loka þeim. Það hefur rignt töluvert, úrkomumælirinn fór út á sunnudegi og á mánudegi voru komnir 30 mm. Síðan hefur rignt minna, en oftast eitthvað á hverjum degi. Hlýindi í veðri og engin næturfrost hafa komið, það sést dagamunur á gróðrinum. Fljótt á litið virðist allur trjágróður koma vel undan vetri og allt er komið af stað, blæöspin er seinust, en brumin eru farin að þrútna. Ég setti eitt blóðrifs í ker fyrir utan dyrnar, og það blómstrar þessum líka fallegu rauðu blómum þó lítið sé. Þessi græðlingur er líklega á þriðja ári.
Við erum að pota aspargræðlingunum niður, komnir eru núna 230 stykki hér og hvar um móann, aðallega austan við akurinn, uppi á holtinu þar sem áður var svolítið eyða í skjólhringinn. Þegar gengið er um svæðið finnast margar aspir frá því í fyrra og hittifyrra, en þær eru greinilega að koma vel upp núna, þær sjást ekki á sumrin þegar grasið felur þær.
Halldór sótti 4 fiskiker í viðbót og nú er nóg af þeim. Í dag byrjuðum við að setja skjólgirðinguna upp norðan við vinnusvæðið. Ruðningurinn er orðin svaka flottur, af runnum ber brekkuvíðir af, en loðvíðir kem fast á eftir. Til að koma kerjunum betur fyrir þarf að tæma kerið með bleiku jarðarberjunum, ég tók þau upp og gróðursetti syðst í landinu, í kringum hindberin sem þar vaxa. Það er til nóg af græðlingum. Síðast þegar ég gróðursetti bleik jarðarber var það síðsumars og þau komu ekki upp í fyrra, vonandi gengur betur núna.
Hjá MB var tiltektardagur úti, við fórum nokkrar og tókum til í beðunum. Við keyptum 3 stór birki hjá Sædísi og settum í þar til gerða hringi, nú hafa verið settir háir steypukantar við, svo ekki verður eins auðvelt að keyra trén niður. Þá klipptum við til alparifsið sem þrífst ekki almennilega við bílastæðið, tókum nokkur dauð burtu og ég kom með loðvíði 'Ugga' í staðinn. Við bættum nýrri mold, hreinsuðum gras og illgresi og gáfum áburð, ég kom með sveppamasssa, 'manure tea' og smávegis blákorn. Gaf meira að segja kaffikorg. Nú verður spennandi að sjá hvernig þessu reiðir af í sumar.
Friday, May 16, 2014
Föstudagur 16. maí 2014
Labels:
aspir,
fiskiker,
græðlingar,
hnúðkál,
jarðarber,
MB,
priklun,
skjólgirðingar
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
May
(13)
- Fimmtudagur 29. maí 2014 - Uppstigningardagur
- Þriðjudagur 27. maí 2014
- Sunnudagur 25. maí 2014
- Fimmtudagur 22. maí 2014
- Þriðjudagur 20. maí 2014
- Laugardagur 17. maí 2014
- Föstudagur 16. maí 2014
- Sunnudagur 11. maí 2014
- Þriðjudagur 6. maí 2014
- Mánudagur 5. maí 2014
- Sunnudagur 4. maí 2014
- Laugardagur 3. maí 2014
- Föstudagur 2. maí 2014
-
▼
May
(13)
No comments:
Post a Comment