Thursday, June 12, 2014

Fimmtudagur 12. júní 2014

Mjög fínt veður, 16°C, logn og sól með köflum fram að miðnætti.
 Í dag vann Halldór í skjólgirðingu, en ég setti hnúðkál í beð nr. 6. Sumt af því var ónýtt, alveg rótarlaust. Gat ekki séð nein kvikindi sem eiga sök á þessu. Þetta er úr fyrstu sáningunni, kálið sem leit svo óskaplega vel út framan af. Það fóru 4 bakkar neðst í beðið, merktir sáningu 21. 4. Þeir litu miklu betur út.
 Mýsnar leika lausum hala í ruðningnum og kunna vel við sig þar sem gróðurinn er orðinn þéttur. Svo kom rebbi um 10.30 og hræddi fuglana í móanum, þess vegna fór ég að svipast um og sá hann. Þessi var mórauður.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive