Ágætt veður í dag, hæg A og 11°C. Meiri sól föstudag og laugardag, en þeir dagar fóru í veisluundirbúning. Á fimmtudag gróðursetti Halldór 15 aspir og var áður búinn að gróðursetja 10 í NV stykkið, þar vantar meiri þéttleika. Við gróðursettum 3 villirósir sem eru af fræi frá Mógilsá. Þær eru í góðum vexti og líta vel út.
Ingibjörg var með mér og við skúruðum hvíta gáminn vandlega, það er allt annað líf að koma þangað inn núna.
Í dag fór Halldór með áburð á NV stykkið og upp á NA holtið, nokkrar aspir í grasbakkanum nær þjóðvegi fengu líka áburð. Ég plantaði út 4 bökkum af rauðrófum í beð 5. Þær eru ósköp litlar og þær sem eftir eru ennþá minni. Samt er búið að vinsa úr, nærri helming þegar priklað var og aftur þegar sett var niður, en þær sem áður voru komnar út virðast ekkert vera að taka við sér. Það er annað með "ónýtu" hnúðkálin. Þau voru fjólublá og rótarlaus/rótarlítil, en nú sé ég ekki betur en þær séu í góðum vexti.
Kartöflurnar úr okkar eigin útsæði eru áberandi lengur af stað en úr útsæðinu frá KB, nema hvað yrkið 'Sauðlauksdalur' fer afar vel af stað.
Hrönn og Hjörtur komu í heimsókn og sóttu nokkrar plöntur sem þau áttu inni hjá okkur síðan þau fengu borðið, þau vildu kvisti, en af þeim er ekkert til. Þau tóku alparifs, blóðrifs og gullrifs, geislasópa (3), stóra sýrenu, rósareyni og hnaus af myntu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
June
(19)
- Mánudagur 30. júní 2014
- Eik - Stilkeik - Quercus robur
- Sunnudagur 29. júní 2014
- Mánudagur 23. júní 2014
- Sunnudagur 22. júní 2014
- Laugardagur 21. júní 2014
- Fimmtudagur 19. júní 2014
- Miðvikudagur 18. júní 2014
- Þriðjudagur 17. júní 2014
- Mánudagur 16. júní
- Fimmtudagur 12. júní 2014
- Miðvikudagur 11. júní 2014
- Þriðjudagur 10. júní 2014
- Mánudagur 9. júní 2014
- Sunnudagur 8. júní 2014 - Hvítasunnudagur
- Fimmtudagur 6. júní 2014
- Þriðjudagur 3. júní 2014
- Mánudagur 2. júní 2014
- Sunnudagur 1. júní 2014
-
▼
June
(19)
No comments:
Post a Comment