Það hefur kólnað, í dag var 11°C og A6, sólarlaust. Rigndi talsvert sl. nótt.
Ég gekk frá ætiþistlum, gróðursetti 7 af 'Green globe' og 12 'Violet' í reitinn hjá myntunni og setti 12 'Green globe' í fötur og stóra potta. Nelita fær 3 'Green globe' og 9 'Violet' til að taka með sér á Klaustur.
Hér eru ætiþistlarnir komnir á sinn stað, í karm og í fötur og stóra potta. Síðast þegar ég reyndi þetta drápust þeir um veturinn, en ég ætla að prófa að hylja beðið í vetur og sjá hvað gerist. Þeir sem eru í pottum fara inn á Mógilsá þegar haustar og þá ættu þeir að pluma sig.
Við Halldór sorteruðum þau hnúðkál sem eftir eru, þau eru lítil og ljót og við hentum um það bil 1/3 en sameinuðum hin. Við vitum ekki hvað er að. Ég gaf þeim þunna blöndu af tilbúnum áburði og lokaði karminum aftur.
Trjávöxturinn heldur áfram að gleðja. Stærstu árssprotar á greni eru nú þegar að nálgast 20 cm, jafn mikið og á öspum.
Og fyrsta gulrótin var tekin upp í dag, hún reyndist 5 cm og sú besta sem hægt er að fá.
Wednesday, June 18, 2014
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
June
(19)
- Mánudagur 30. júní 2014
- Eik - Stilkeik - Quercus robur
- Sunnudagur 29. júní 2014
- Mánudagur 23. júní 2014
- Sunnudagur 22. júní 2014
- Laugardagur 21. júní 2014
- Fimmtudagur 19. júní 2014
- Miðvikudagur 18. júní 2014
- Þriðjudagur 17. júní 2014
- Mánudagur 16. júní
- Fimmtudagur 12. júní 2014
- Miðvikudagur 11. júní 2014
- Þriðjudagur 10. júní 2014
- Mánudagur 9. júní 2014
- Sunnudagur 8. júní 2014 - Hvítasunnudagur
- Fimmtudagur 6. júní 2014
- Þriðjudagur 3. júní 2014
- Mánudagur 2. júní 2014
- Sunnudagur 1. júní 2014
-
▼
June
(19)
No comments:
Post a Comment