Monday, June 23, 2014

Mánudagur 23. júní 2014

Sólskin og 15°C, en allhvasst, 10m og 18 í hviðum. Við fórum niðureftir og settum niður kál frá Sædísi. Hnúðkál, blómkál, spergilkál, hvítkál. Halldór hjálpaði mér að fylla ker nr. 13, þar ætla ég að setja rósakál og salatplöntur. Kláraði að færa spergilinn í ker nr. 12, það eru 8 plöntur á lífi og með stórt og flott rótarkerfi.
8 plöntur voru fluttar, allar með flott rótarkerfi. 7 sjást á myndinni, en sú 8. brotnaði og rótin fær að vera, kemur etv. upp næsta sumar. Í næstu kerjum sjást kartöflur, mismunandi gróðursetningartími.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive