Monday, June 9, 2014

Mánudagur 9. júní 2014

Logn, mistur í lofti og síðdegisskúrir, hiti 14°C allan daginn og fram eftir kvöldi.
Í dag náði ég að raka 3 beð, 2 eru eftir. Við gróðursettum 5 blæaspir úr Skallagrímsgarði í viðbót og líka 5 hindber sem náðust á sama stað. Loks bættum við 2 birkitrjám og 1 reynitré syðst í lóðinni þar sem 2 gömul reynitré eru dálítið einmana. Annar gróður, greni, reynir, víðir og blæösp eiga talsvert í land að ná þeim í hæð.
  Kláraði að prikla ilmreyni úr Laugardal, fræinu var sáð haustið 2013. Í allt urðu þetta 4fp40 bakkar og einn frauðplast, rúmar 200 plöntur og allar mjög fallegar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive